{ Óli Njáll - oli@verzzzzlo.is }

[ Naggur | Pall | Doktor | Múrinn | Anton | Gamalt ]

[ AC/DC | Thors | Smurf | Sverrir | Gneistinn | Kolla ]

[ Nuda Veritas | Kristin | Keflavík | Bendt | Sunna | Greinar ]

16.11.04

Hent út

Í sumar var ég fenginn til að skrifa á vefrit um bækur. Sökum dræmra afkasta hef ég nú verið rekinn þaðan. Reyndar sýnist mér að meira en helmingur rýnenda hafi fengið reisupassann. Já, stalínskir eru starfshættir yfirvalda á þessu riti.

Vitanlega fær það ekki tengil hér.

Óli Njáll  10:21| 
link
------------------

15.11.04

Meiri pæling

Ég held virkilega að það hefði verið hollt fyrir íslensku þjóðina ef íslensku tindátarnir 3 hefðu fallið í stað þeirra sem týndu lífinu í Kjúklingagötu í Kabúl.

Þá myndu hálfvitar hér á klakanum loksins skilja að stríð er ekkert grín.





Óli Njáll  22:48| 
link

Mánudagshugleiðingar

Sit hér á Kapló og læt tímann líða. Sunna er að horfa á csi sem er frekar fúll þáttur. Þrátt fyrir það er hún ágætis manneskja.

Var að átta mig á því að senn líður að jólum. Ég á enn eftir að kenna eitthvað smá, búa til smá fjarnám, gera eitt stykki ba ritgerð og klára einn kúrs í HÍ. Mun þetta allt takast? Jájá, og í leiðinni verður Liverpool Englandsmeistari.

En hvað var nú brallað þessa helgina? Tja, nákvæmlega ekki neitt. Fór ekkert á djammið og drakk ekki einn einasta bjór. Já, ég skammast mín - ellin færist yfir mig. Átti hins vegar ágætt sunnudagskvöld þar sem ég átti ágætan leik í fótboltanum og vann svo leik í hattrick á móti toppliðinu.

djöfull hef ég ekkert merkilegt að segja....

Óli Njáll  22:37| 
link
------------------




Powered by Blogger