Hrísgrjón og karrý
Ég er víst á leiðinni á austur indíafjelagið. Það verður nú ekki leiðinlegt.
Óli Njáll 18:43| link
Ammæli i dag
Ég á ammæli í dag. Blóm og kransar eru ekki afþakkaðir.
Óli Njáll 09:51| link
------------------
5.10.04
Takk Geir
Fróðir menn segja mér að skattalækkanir muni stórbæta líf mitt þar sem ég mun fá um 2000 krónum meira á mánuði. Það er bíómiði fyrir 2 og kók. Bara minn aumingjaskapur að hafa ekki hærri tekjur. Þá myndi Geir gefa mér enn fleiri bíómiða.
Gott að vita að góðir menn stjórna landinu.
Óli Njáll 10:01| link
------------------
4.10.04
Dómarinn ógurlegi
Þá er handboltatímabilið hafið hjá mér í dómgæslunni. Tveir leikir dæmdir um helgina í unglingaflokki kvenna. Ágæt frammistaða í báðum leikjum, þótt ég segi sjálfur frá.
Ég er orðinn lukkudýr Víkings í handbolta. Hef mætt á alla þrjá leiki þeirra í deildinni og allir hafa þeir unnist. Mætti ekki á bikarleikinn gegn Stjörnunni (sem klárlega er skítalið) og hann tapaðist. Velgengni Víkinga veltur á dugnaði mínum í vetur til að mæta á leiki.
Ég er sannfærður um að ég sé betri dómari en hóruunginn Jón Steinar Gunnlaugsson.
Óli Njáll 11:09| link
------------------
3.10.04
Blómakeppni dauðans
Þjóðarblómið sökkar. Í mótmælaskyni kaus ég fífuna en það er nú ljóta blómið. Augljóslega er þjóðarblómið Njóli enda rímar það við Óli.
Óli Njáll 23:47| link
------------------