Burgeisinn
Ég hef komist að því að ég þekki burgeisa mikinn. Sá sankar nú að sér íbúðum í öllum hverfum borgarinnar og æðir svo bara til útlanda. Jamm, ekki væri amalegt að vera svona efnaður. Ég húki hér bara í íbúð minnar frúar, það er samt ekkert slæmt. Ég vil þó taka fram að þótt ég húki þá er ég ekki púki.
Einnig vil ég taka fram að Glósu-Jón verður fljótlega nágranni minn í Vesturbænum. Já, hingað safnast góðir menn.
Óli Njáll 21:50| link
Um heimsku og vitleysu
Heiðurslaun listamanna eru fáránlegur hlutur, það er ekki neitt vitrænt við slík laun. Að verðlauna það fólk sem gengið hefur vel á sínum ferli, oftast hefur þetta fólk haft vel upp úr því að iðka sína listgrein. Hugmyndin að gefa skattfé almennings til þeirra sem hafa það gott er einfaldlega gersamlega út í hött. Styrkir til menningarmála eiga fremur að beinast að styrkja þá sem eru að hefja sinn feril, reyna að gefa út fyrstu plötu, skrifa fyrstu bækur sínar o.s.frv. Peningum sem dælt er í gamalt útbrunnið fólk sem ekkert skortir eru vitagagnslausir. Þeir skila sér engan veginn til baka. Að styðja við bakið á upprennandi listamönnum getur hins vegar reynst hin gáfulegasta fjárfesting.
Rök fyrir því að verðlauna svona ellismelli með mínum skattpeningum eru engin, það er engan veginn verjandi að sóa peningum í svona gæluverkefni þar sem meðlimir menntamálanefndar fá að útnefna sín átrúnaðargoð og bera á þau fé. Eigum við þá ekki bara einnig að verðlauna Guðna Bergs og Jolla fyrir að góða frammistöðu í boltanum
Óli Njáll 10:29| link
------------------