Gestur
Góður gestur mætti í Árnagarð í dag. Hafði sá átta fætur og skreið beinustu leið inn í lyftuhúsið. Óttaðist ég fyrst að þarna væri kominn æstur ættingi þess sem ég barði af stofuglugganum um daginn.
Óli Njáll 14:41| link
Meðaltal
Ég gær var mér kennt að reikna meðaltal á háskólastigi. Það var ósköp líkt þeirri aðferð sem mér var kennd á einhverju frumstæðu skólastigi á síðustu öld.
Óli Njáll 14:26| link
------------------
16.9.03
Engin leti lengur
Ekkert bloggað í marga daga, nú verður úr því bætt.
Í gær var góður dagur. Ég sótti ritgerðina mína úr ÍN3 og það var alveg stórskemmtilegt. Eggert Þór Bernharðsson er öðlingur mikill. Aldrei hefur mér gengið jafn vel í ritgerð. Er ég ráfaði um Nýja Garð rakst ég einnig á mikilsvirtan fræðimann sem nýlega hefur safnað alskeggi. Fagna ég því enda eru allir alvöru fræðimenn og þá sérstaklega í sagnfræði skeggmenn miklir. Sönnunargagn: Ingi Sigurðsson.
Einhver sjóður vill úthluta 200000 krónum til fólks sem skrifar lokaverkefni um heilbrigðissögu. Þetta þarfnast nánari athugunar. Ekki væri nú leiðinlegt að fá borgað fyrir b.a. ritgerð.
Regla 2 í umgengnisreglum tölvustofa í Verzló er greinilega flóknari en ég taldi. Óþolandi að þurfa að böggast í fólki langt fram eftir hausti til að fá krakkana til að skilja þessa stuttu og hnitmiðuðu reglu.
Landsfundur UVG á næsta leyti. Ætti maður að skella sér þangað? Ég hugsa um það eftir því sem vikan líður. Ekki hef ég hugmynd um hver niðurstaðan verður.
jamm, meira blogg væntanlegt.
Óli Njáll 11:29| link
------------------