Logi
Ekki hef ég heyrt neitt í félaga Loga í allnokkurn tíma. Kannski herra Anton Karl geti bjargað því fljótlega...
Óli Njáll 11:27| link
Party
Ó já, það er sko útlit fyrir alveg hörkudjamm um næstu helgi. Ég veit þó um íbúa viss fjölbýlishúss sem munu eflaust upplifa það djamm á vondan hátt, rifja upp gamlar vondar minningar um fyrri óskunda íbúðareigandans og gera heiðarlega tilraun til að gráta sig í svefn áður en þau kalla á lögregluna. Ég mun hins vegar án efa skemmta mér konunglega.
Í gær fór ég út í fótbolta, meðspilari minn var mjög óviss um hvort fótbolti eða rennibraut væri skemmtilegri og úr varð eins konar rennibrautafótbolti. Einnig var nauðsyn að prófa alla 6 fótboltavellina á svæðinu.
Mánaðarmótin júlíágúst að nálgast, leiðinleg sökum þess að ég fæ enga útborgun:( Mánaðarmótin þar á eftir fæ ég hins vegar borgað tvöfallt, þau eru mjög skemmtileg.
Ég er að bræða með mér stórar ákvarðanir.
Óli Njáll 11:26| link
------------------
22.7.03
Flúðir
Ég fór á Flúðir í gærkvöldi í dýrindis grillmat, svínalund og fleira góðgæti þar á boðstólum. Það er því búinn að vera mikill þeytingur á mer enda var ég í fyrradag í Stykkishólmi. Svona stutt ferðalög eru fín, kannski fer maður fleiri slík í sumar. Annars langar mig einnig að komast á Vestfirðina, langt síðan maður kom þangað síðast.
Í morgun lét ég svo skoða í mér augun, þau eru í ágætis standi og hafa aðeins versnað um 0,25 á 5 árum. Ásættanlegt og kannski maður skelli sér bara í aðgerð til að eyða þessu með öllu.
Bíllinn minn ástkæri fór í eftirlit á föstudaginn og fékk nýja reim og sitthvað fleira. Er ég kom að sækja hann beið mín reikningur upp á 74000 krónur. Ég harðneitaði að borga og var tilbúinn að láta öllum illum látum yfir svínslegri græðgi starfsmanna Heklu. Tókst að lækka reikningin niður í 46000 krónur að lokum og undi sáttur við minn hlut. Nýju tryggingariðngjöldin af bílnum hafa einnig verið greidd, Sjóvá vill 64000 krónur meðan að VÍS vildi 200000 krónur, já maður lætur ekki bjóða sér slíka frekju. Þeir eiga bara að vera stolltir og glaðir yfir því að ég vilji tryggja hjá þeim enda er ég mikill fengur sem tryggjandi.
Óli Njáll 11:44| link
------------------
21.7.03
Uppgjör helgarinnar
Það var meira krikket á Laugardaginn og aftur töpuðum við, að þessu sinni 132-129. Þeir áttu 5-6 lok eftir þegar þeir náðu okkur, bömmer. Maður leiksins var þó tvímælalaust Alex Dean sem kom inn á þegar Kylfan var 12 fyrir 6 og skoraði rúm 50 stig. Þess má til gamans geta að ég stóð ekki mjög lengi, 4 hlaup úr 4 boltum. Lét fyrstu 2 fara, bombaði þann þriðja fyrir fjarka og var svo gripinn sökum ofmetnaðar og barnslegs ákafa. Mitt batting average er því 13 í international leikjum sem er nú ekkert agalegt. Einnig þyki ég minna á meistara Adam Gilchrist í því að bomba á allt sem hreyfist enda er scoring rate hátt í 100 hjá mér, 13 stig úr 14 boltum.
Í þessum sama leik tók ég einnig mitt fyrsta alþjóðlega wicket og er því aðeins rúmlega 400 á eftir Murali. Skilaði tölum upp á 3-0-25-1, já svoldið expencive en average upp á 25 er tvímælalaust stórgott.
Um kvöldið var svo veisla í breska sendiráðinu og tjamm á eftir, alls ekki leiðinlegt. Jafnframt er í burðarliðnum ferð Kylfunnar til Englands næsta sumar þar sem Effigies verða sóttir heim og jafnframt farið á leik Englands og Vestur-Indía. Það verður bara kúl. Já, kúl,kúl,kúl, Krikket er kúl!!!!!
Óli Njáll 10:25| link
------------------