NV
Ekki er það góð flétta að setja Árna Steinar í 2. sætið í NV kjördæmi. Það er alltof mikill norðurlandsbragur á framboðslistanum. Í svona kjördæmi á að plotta skilmerkilega þannig að hver hluti hafi sinn fulltrúa. Hvað hefur Árni fram að færa þarna? Nákvæmlega ekki neitt, honum hefði átt að fórna fyrir þessar kosningar. Augljóslega átti að henda þarna fram borgnesingi eða einhverri annari tegund af vestlendingi. Jón Bjarnason sér alveg um norðurlandið en við erum að gera okkur of erfitt fyrir með því að hafa engan vestlending. Þetta er heimskuplott.
Engu að síður eigum við auðveld 2 þingsæti þarna. Það gerir Jón Bjarnason einn og sér og sjálfur enda er hann hetja og töffari.
Óli Njáll 17:14| link
Hoppandi grálúður
Erik Hobsbawm er að drepa mig úr leiðindum. Ég ætla hér með að flokka hann sem ónytjung hinn mesta. Ég hlakka gríðarlega til þegar mannkynssögu 4 prófið mitt er búið.
Óli Njáll 16:11| link
------------------