úff, Pálsson segir að ég hafi gert mig að meira fífli en ég vilji viðurkenna. Ég stóð í þeirri trú að ég hefði gert mig að algjöru fífli, það er greinilega verra en það. Þá er það nú slæmt. Í samtölum við góða menn hef ég svo verið að rifja upp afrek mín í gær, en vantar þó nokkur brot. Ég þarf að tala við fleiri aðila til að fá heildræna mynd af þessu. Æi, nú gerist ég bindindismaður, sný baki við kvenfólki, raka af mér hárið og fer að ganga í kufli.
Óli Njáll 21:36| link
Jæja, nú er bloggað með hausverk. Gærkveldið var bara ansi skemmtilegt þar til ég var orðinn alltof,alltof,alltof fullur og álpaðist þá loksins heim í slæmu ásigkomulagi. En hvað var svo sem málið: Ég man ég hagaði mér eins og bjálfi, hitti strákúst og strumpa, át fullt af rjómaosti, bullaði í Færeyingum og er í dag alveg skelfilega þunnur. Margt er þó hulið móðu hvað gærkvöldið varðar. Já, krakkar, áfengi er böl.
Óli Njáll 15:10| link
------------------