djöfull er ég uppgefinn núna. Búinn að vera í útréttingum í allan dag, vonandi að það borgi sig svo. Svo er það Liverpool vs. Newcastle á eftir. Eins gott að mínir menn taki þennan leik, áfram El-Hadji.
Annars fór ég á tvær vondar myndir um helgina, Signs og Slap her, she's french. Báðar vondar en sú síðarnefnda þó mun verri. Aftur á móti fór ég á góðan veitingastað, Galileo, á laugardaginn með Bergný og var það vægast sagt mjög gaman, góður matur í góðu umhverfi í góðum félagsskap.
Skólinn byrjaði í dag, það er ágætt að koma aftur í Árnagarð. Ég er annars alveg foxillur yfir því að ég þarf að sitja tíma í Odda sökum þess að miljón stjórnmálafræðigimp hafa tekið yfir M4 en alls eru 115 skráðir í kúrsinn. Vægast sagt ógn og skelfing.
Óli Njáll 19:00| link
bdd
Óli Njáll 10:21| link
------------------