Ógilding
Að sjálfsögðu mun ég fara fram á það við dómara að hann taki þessa mynd ekki gilda sem sönnunargagn enda hefur augljóslega verið fiktað eitthvað við hana. Svo er nefnilega mál með vexti að ég var algerlega alsgáður í gærkvöldi og veit því nákvæmlega hvenær þessi mynd er tekin og líka hver var líka á myndinni en hefur klippt sjálfan sig út enda var sá maður ofurölvi og illa til reika.
Óli Njáll 19:08| link
edrú
Staðfastlega mun ég neita því að ég hafi verið fullur líkt og fúlmennið Þórir gefur í skyn á sinni aumu síðu. Hins vegar virðist sem illmennið Þórir hafi rænt mig ginflösku, allavega lagði ég af stað með eina fullla en seinna um kvöldið var hún tómog ekki var ég að drekka ólíkt þeim mikla landsbyggðarrafti. Einnig gruna ég Loga, vin hans Antons, um að hafa verið stórtækur í drykkjunni. Hér að lokum er uppskrift að góðum drykk:
ca. 2 falldur gin
hálft glas af Rynkeby mild morgen juice
hálft glas af Egils Grape
Nokkrir klakar
Þetta kallast Stærke morgen juice og er alveg skrambi gott.
Óli Njáll 15:05| link
------------------