Snitzel
Nei, ekki Heimir heldur bara gamaldags vínarsnitzel. Frábær matur, með spælegg, lauk og kartöflum. Mikil snigld þar á ferðinni.
Óli Njáll 21:15| link
Jamm
Um hvað skildi þessi pistill snúast um. Jú mikið rétt, fótbolta. Nú er um hálftími liðinn frá því að man.utd. var kjöldregið og endaþarmsþjappað á Anfield Road 3-1. Hafi einhver efast um að Michael Owen væri bestur þá hlýtur sá hinn sami að hafa séð ljósið áðan. Og hvílíkt mark hjá rauðhærða norðmanninum Riise. David Beckham er bara ullarmígur miðað við þessar aukaspyrnu. En annars var þetta nú ekkert voðalega merkilegur sigur. MU er bara miðlungslið og ég hreinlega man ekki hvenær við töpuðum síðast fyrir þessum aulum.
Óli Njáll 14:02| link
------------------