Hrikalegt
Það er skelfilegt að ferill Hermanns Meiers skuli vera á enda eftir hrikalegt móterhjólaslys um helgina. Mér verður hugsað til allrar þeirrar vinnu sem ég er búinn að leggja í það að kenna nokkrum krakkabjálfum að muna þetta nafn. Nú þarf ég að leggja sennilega enn meiri vinnu í að berja ný skíðakappanöfn inn í sömu hausa:( Guð veit að það var nógu erftitt að fá þessa antisportista til að muna þetta eina nafn.
Óli Njáll 05:11| link
Siggi P
Sigurður Pétursson heitir maður, sonur Péturs Sigurðssonar og Sigurður þessi er einmitt fyrrum sögukennari minn. (Reyndar er sögukunnátta Sigga afskaplega takmörkuð þrátt fyrir cand.mag próf en á móti kemur að þessi maður er mesti öðlingur og prýðisnáungi.) Og nú er Siggi p. farinn að skrifa á kreml.is enda samfylkingarsinni. Mér finnst það reyndar afskaplega fyndið þar sem Siggi er rúmlega fertugur, fæddur 58 og hlýtur þar með að vera langelsti maðurinn sem skrifar á svona ungliðavefrit. En sennilega leiðist honum bara á Ísafirði og ég lái honum það ekki.
Óli Njáll 02:53| link
------------------