Plássfrekja
Í ljósi síðustu upplýsinga sem ég hef fengið er nokkuð ljóst að Borgarnesdýrið er andskoti plássfrekt en hann ku vera búinn að leigja heila höll fyrir það sem ég hélt að ætti að vera sumarbústaður.
Óli Njáll 14:05| link
GÁS
Já, Guðmundur Árni Stefánsson var í steiglunni hans Egils í gær og margt merkilegt sem kom fram þar. Í ljós kom að Gúdmúndur notaði sömu rökin fyrir öllum sínum skoðunum þ.e. vegna þess að svona er það í v-evrópu. Þetta var einhvert mesta bull sem ég hef séð. Ísland átti að vera í Nató af því að önnur evrópuríki vildu vera í nató, Ísland átti að vera í Esb vegna þess að önnur evrópuríki vildu vera þar og síðast en ekki síst átti samfylkingin að meika það feitt af því að jafnaðarmannaflokkar í evrópu hafa meikað það. Herre gud. Já, samfylkingin er magnaður hlutur.
Óli Njáll 13:28| link
------------------